island comicsBerufjörður · Hamarsfjörður
og Breiðdalur

Opið kall til myndasöguhöfunda

Tyrkjaránið

Veldu fyrir

Einn kjarnatexti og margar persónulegar frásagnir. Við lesum þær í landslaginu, með Búlandsnes og firðina í kringum okkur.

Kjarnatextinn · frásögn skráð 1628

Tyrkjaránið 1627

Lengri frásögnin tengir saman lendinguna, bæina, fólkið og brottförina. Hún er höfð eftir skólapiltum úr Múlasýslu og birtist hér í lesútgáfu aðsendstextaafrits úr Dvergasteini.

Lesa kjarnatextann í heild

Annáll · heimild um svæðið

Skarðsárannáll 1627

Stutt skráning um ránið og mannfall. Hún lýsir svæðinu í heild og er lesin sem sérstök heimild, án staks staðsetningarmerkis á kortinu.

Lesa annálstilvitnunina

Frásagnir í landslaginu

Veldu örnefni. Lestu söguna. Finndu þína nálgun.

Frá Hamarsdal yfir á Búlandsnes, meðfram Berufirði og norður í Breiðdal. Merkin tengja frásagnir við skráð örnefni og bæjarsvæði.

Sögukort af Berufirði, Hamarsfirði og Breiðdal

Dragðu til að færa. Stækkaðu með +.

Kortheimildir og nákvæmni

Kortið notar opinbera strandlínu, skráð örnefni og nútímabæjarakkeri. Línur Þorsteinsgjótar, Krossár og Fagradalsskarðs eru úr örnefnagögnum; engin áætluð flóttaleið er teiknuð. Tengistrikin við tölusettu merkin eru vísilínur, ekki ferðaleiðir.

Leyfi og höfundarmerkingar LMÍ · Terrain Tiles · ArcticDEM og aðrir hæðargagnagrunnar. ArcticDEM byggir á DigitalGlobe-myndum og styrkjum National Science Foundation 1043681, 1559691 og 1542736; einnig Copernicus/EU-DEM, USGS GMTED2010/SRTM og NOAA ETOPO1.

Búlandsnes er nesfláki; hann merkir ekki nákvæmlega gamla bæjarstæðið. Skráningarhnit hella eru ekki mæling á aðgengi. Landfræðilegar heimildir fyrir hverjum stað fylgja í staðaspjaldinu.

Hvaða frásögn velur þú?

Ritstjórn samþykkir valið. Veldu fyrir 17. janúar 2027; lokaskil verka eru 4. júní og útgáfan 4. júlí 2027.

Sæki frásagnir og stöðu þeirra…

Áður en við teiknum

Röddin, heimildin
og staðurinn.

Heilu frásagnirnar koma úr aðsendu textaafriti af Dvergasteini: Þjóðsögum og sögnum úr Djúpavogshreppi eftir Öldu Snæbjörnsdóttur, Skruddu 2018, bls. 149–160. Eldri heimildatilvísanir fylgja textunum.

Frekari lestur: The Travels of Reverend Olafur Egilsson eftir Ólaf Egilsson, í enskri þýðingu Karls Smára Hreinssonar og Adams Nichols. The Catholic University of America Press, 2016.

Skoða alla textana
Kjarnatexti, sagnir og afbrigði

Kjarnatextinn, annállinn og staðbundnu sagnirnar eru aðgreind. Tvö Álfheiðarafbrigði fylgja hvort í sínu lagi. Hermann í Eyjum, Bessi við Fagradalsskarð og pilturinn við Núp eru sjálfstæðir frásagnarþræðir.

Lesútgáfan og ensku textarnir

Línuskipti í aðsendu vinnuafriti eru sameinuð og augljósar afritunarvillur leiðréttar við samanburð við ljósmyndir af bókarsíðum. Frekari yfirferð stendur yfir. Óbreytt vinnuafrit fylgir hverri frásögn. Enska efnið er merkt sem óyfirfarin vinnuþýðing.

Skrá yfir afritunarleiðréttingar

Val, umfang og skil

Þú sendir ritstjórn beiðni um frásögn og stutta hugmynd. Engin frátekt verður til fyrr en ritstjórn samþykkir. Umfang, skráasnið, samráð og útgáfuskilmálar eru rædd við samþykki. Með valinu tekur þú að þér að ljúka samþykktu verki fyrir lok 4. júní 2027 að íslenskum tíma. Myndasögurnar koma út saman 4. júlí 2027, á 400 ára afmæli ránsins fyrir austan.

Réttindi og persónuupplýsingar

Beiðni felur ekki í sér framsal höfundarréttar. Birtingarleyfi og höfundarmerkingar eru samin sérstaklega. Nafn, netfang, hugmynd og samþykki fyrir skiladegi eru vistuð í einkageymslu verkefnisins og eru aðeins aðgengileg ritstjórn. Fyrir leiðréttingu eða eyðingu upplýsinga: Myndarsögur, með beiðninúmeri.

Þín nálgun

Þetta er beiðni um frásögn, ekki sjálfvirk frátekt eða útgáfusamningur.